Störnuskoðun!!!

Hæ hæ, ég er ný búinn að fara í störnuskoðun með skólanum út fyrir borgina. Það var reyndar rigning svo að við sáum engar stjörnur en og ég náði myndbandi af eldingu. Sko, eldiningin kom þremur metrum frá okkur. Það voru tvær stelpur að fara á klósettið, og eldingin var bara einum metra frá þeim. Þær urðu frekar hræddar, fundu jörðina hristandi. Það kom far eftir eldinguna, jörðin var svört og þetta var á sandi. Hann bráðnaði.

Ég tók videoið á símann minn svo að upplausnin er ekkert spes. Ég ætlaði að gera horror movie. Þetta varð kannski bara ágætis horror movie. Hér er það


Kominn aftur!!!!!!!!!!!

Nú er ég kominn aftur, ég ætla ad vera duglegri ad bloggaWink. Ég er nýbúinn ad fara til Vic falls einn af fallegustu fossum í heimi. Magga frænka er komin, thad er buid ad vera rosa gaman, bæ!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!Cool


Ekki á spítala

Það munaði engu að mamma fór með mig á spítalan í gær út af því að maginn á mér var allur orðinn blár og það var ros mikill gröftur. Ef við hefðum ekki kreist hann þá gæti komið sýking í allan líkamann og ég fengið blóðeitrun og dáið. Maginn minn stóð út í loftið, eða neðri hlutinn af maganum, eins og á svöngu börnunum.O.K blogga seinna.


Kóngulóarbit dauðans 2

Ég er kominn með nýja skoðanakönnun, endilega takið þátt í henni. Margir stóðu sig vel í þeirri síðustu, en flestir héldu að svört mamba væri hættulegust, en hún er amk. sú sem drepur flesta. Mannskæðust og hættulegust. Anaconda er kyrkislanga, ekki eiturslanga, svo ég plataði ykkur smá. Þegar ég var að ganga úti í sveit um daginn var ég næstum búinn að stíga á eina spitting cobra, svona röndótta tveggja metra langa. Munaði engu, en pabbi vinar míns sá hana sem betur fer og lét alla stoppa.  

Nú eru fréttir fréttir. Ég er kominn með annað kóngulóarbit og verra. Ég skal sýna ykkur smá myndir
bit 2 008 bit 2 011 bit 2 007

Ég fékk sko bitið í seinustu viku og er búinn að vera að drepast í því. Hálfur maginn á mér er rauður og blár (sést kannski á myndinni)og ég er búinn að fara tvisvar til læknis og er með þrjú lyf. Svo fæ ég líka hita og er með verki um allt. Þetta er nú meira bitið.
bit 2 006

Mamma og læknirinn þurftu að kreista gröft og það kom ógeðslega mikið og það var GEÐVEIKISLEGA VONT.

Ég átti að fara á fótboltamót um helgina en ég kemst ekki útaf þessu. Ég er líka að gera science experiment í skólanum með Eric en ég verð að senda honum efni til að vinna með en við erum að prófa mismunandi sótthreinsandi efni og sjá hvernig þau vinna á móti bakteríum. Ég missi líka af blakmóti á föstudaginn og líka af íþróttaskóla.

Pabbi er í ferðalagi, hann myndi örugglega fá hjartaáfall ef hann sæi þetta. Ef þetta lagast ekki fyrir morgundaginn þá verð ég að fara enn aftur til læknis og kannski á spítala. Bless í bili.


Surfað í sólinni

Ég gleymdi að sýna ykkur myndir síðan í Swakop þegar ég var í sjónum með bretti.

surf2

Ég skemmti mér konunglega. Ég fór frekar hratt þegar aldan kom. Við fengum pizzu á ströndinni og höfðum það rosa kósí.

surf1

surf3

Nú er ég bara að læra heima. Ég búinn með fimm af tíu bókum af ólíkum gerðum. Á eftir að lesa goðsögu  og ljóð og eitthvað annað. Ég kláraði loksins síðasta bindið af Harry Potter. Hún var geðveikislega skemmtileg.
Nú er búið að vera fótboltamót í skólanum milli bekkja. Ég er í fjórða bekk. Fyrsti leikurinn okkar á móti 6 bekk unnum við  3 -0. Annar leikurinn okkar á móti 3 bekk fór 2-0. Leikurinn á móti 2 bekk fór 3-0. Í leiknum var ég markmaður og ég skoraði með því að kasta boltanum út, og þetta er pínulítill völlur. Leikurinn í dag á móti fimmta bekk unnum við 1-0 og ég skoraði sigurmarkið úr horni.

Allt er í fína. Hópurinn minn í gifted and talented er kallaður g&t, eða gin and tonic.


Þrusu gokart í Swakop

Gokart Swakop

Við fórum til Swakop þegar Hreinsi var hérna og við fórum í geðveikt gokart. Það var geggjað skemmtilegt. Pabbi vann, ég í öðru og Hreinsi í þriðja. Og hér eru frekar margar myndir af því.

Gokart Swakop 1

 

 

Gokart Swakop 6

 

Gokart Swakop 7

 

 

 

 

 

 

 

Gokart Swakop 2

Óskar og Stebbi skemmtu sér konunglega, þó að þeir fengju ekki að keyra, heldur voru bara að horfa á með mömmu.

Gokart Swakop 3

 

Gokart Swakop 5

Hérna erum við búnir að keyra og erum líka búnir að fá tímatökuna úr keyrslunni.

Annars er allt gott að frétta. Ég er að læra heima og mamma er að baka köku handa okkur. Ég þurfti að skrifa 32 orð sem byrja á w, til að ná 10 vitlausum, sem ég bý svo setningar úr. Akkúrat núna er ég að skrifa um wail, sem er næstum eins og whale en skrifað allt öðru vísi.

Svo eiga allir að muna að kjósa í könnuninni minni um eiturslöngur. Manchester tapaði á móti Everton. Unglinga- eða varaliðið stóð sig frekar vel, en tapaði samt í vítaspyrnukeppni.


Fjórhjólaferð í eyðimörkinni

Eins og þið vitið fórum við til Swakopmund um daginn þegar Hreinsi var í heimsókn. Ég fór á fjórhjól og fékk að fara einn. Það var geðveikislega gaman. Hér er ég í eyðimörkinni með sjóinn í bakgrunni. Ég fer aftur þegar næsti gestur kemur til okkar. Vill einhver flýta sér???

halli fjorhjol

Páskarnir voru  bara alveg ágætir, við fórum tvisvar í  bíó, Dragonballs og Monsters versus Aliens. Svo keyptum við Mr. Bones eitt og horfðum á hana alla. Þær voru allar frekar fyndnar.

Nú eiga allir í bekknum að lesa 10 bækur á önninni af different genres, ég er búinn með eina sem er historical fiction. Ég kláraði hana áðan, hún er um krakka sem fara til Pompeii. Svo þarf ég að finna poem, eða ljóð, biography, traditional tale, mystery.....

Ég spilaði leik í götukeppni um daginn, við vorum tveir úr B liði sem fengum að spila með. Ég var útaf fyrsta hálfleik og þá var staðan 4-2 fyrir hinum. Svo kom ég inná sem framherji og annar frekar góður sem var líka útaf í fyrri hálfleik, og leikurinn endaði 4-4. Bara góður leikur en liðið var frekar lélegt í fyrri hálfleik en bætti sig sem betur fer.

Ég ætla að horfa á Manchester Porto í kvöld. Mamma var nú ekki ánægð með Liverpool Chelsea leikinn í gær sem fór 4-4, enda þolir hún ekki Chelsea. Ég er ánægður með nýliðann Marcheta þessa dagana. Sjáumst seinna!


Gleði, gleði, gleðiblogg og fótbóltamót

halli fussball

Búið ykkur undir stuðsumar, því ég er á heimferð, í frí til Íslands. Mikil gleði. Get meira að segja verið með á Eyjamótinu, sem er ótrúlega skemmtilegt. ÍR mun slá í gegn á þessu móti eins og venjulega Smile

 Annars tók ég þátt í einu móti um helgina með SKW liðininu mínu hér. Okkur gekk vel, lenti í fyrsta sæti, fengum bikar og gullmedalíu. Skoraði 2 mörk, 1 skallamark eftir horn. Hitt var frekar rólegt í hornið.

Já, ég kem heim 20 Júní, og hlakka ótrúlega mikið til að hitta alla. Takk til allra sem skrifa comment.

 Nú verður mikið bloggað á næstunni.

Halli fussball 2


Cooluð klipping

Ég er kominn með mjög coolaða klippingu, en ég er með hanakamb. Hér er mynd af mér.
halli haircut

Ég er enn í fríi, Hreinsi er nýfarinn, við spiluðum fullt, bæði tölvuspil og Kana. Hreinsi keypti handa mér nýjan leik.

Ég er kominn með nýjan síma, og nýtt númer sem er +264-81-4249140. Amma er duglegust að SMSa mér.

Það gekk vel í skólanum og ég er líka kominn í nýtt prógram fyrir gifted and talented, sem er fyrir klára krakka. Fer einu sinni í viku og læri að nota höfuðið. Ég missi reyndar af einum frönskutíma og er ekkert rosa ánægður með það, en það verður að hafa það.

Svo er ég að fara á mót á laugardag og kannski líka á sunnudag. Ég er búinn að vera bæði veikur og svo að ferðast svo ég hef ekki getað mætt mikið á æfingar svo að ég lenti í B liðinu. Það verður bara spennandi að fara að keppa smá.

Mamma á afmæli í dag og við erum að fara að baka köku saman.


Veitingastaðurinn hans Nonna frænda

Nú erum við komin heim úr rosa langri ferð til Kunene og Opuwo. Vorum í heila viku, ég set svo inn myndir seinna úr ferðalaginu, en vildi bara láta vita að ég er kominn heim. Og líka að sýna ykkur þessar myndir sem við tókum í Swakop um daginn, þar sem er veitingastaðurinn hans Nonna!

Nonni 2

 

 

 

 

 

 

 

Nonni


Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Bjarni Davíðsson
Haraldur Bjarni Davíðsson
9 ára fótboltastrákur sem býr í Namibíu

Bloggvinir

Spurt er

Hver vinnur Eyjamótið?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 21956

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband